{Sesame str. 58 } spacer
spacer
spacer

Höfum það einfalt!!!!



Nyjar Myndir

SpesOl 2003

Heimasíður

Mista systir & Lilja
Audur & Emelia
Eva & Torfi
Hrönn
Soffía
Nori
Söngvarinn
Mikkirefur
Ólöf & Pétur
Hrabba
María
Amerígunni
Gunnar Magnús
Magnea & Jón Bjarni
SíAtli

Seattlebúar

Ásgeir & Óli
Tumi
Gunni & Solla
Erna & Hjalti
Grétar

Börn

Dagur Þór
Stefanía Diljá
Hraunbúar

Mogginn

SAA

Netþýðandinn Leoncie




powered by blogger






Weblog Commenting by HaloScan.com

{laugardagur, janúar 17, 2004}

 
Morgunblaðið á netinu er oft uppspretta mikillar kátínu hjá mér og dagurinn í dag var þar engin undantekning. Samt er frekar skrítið að vera að lesa fréttir af Washington fylkisbúum fyrst í íslensku fréttablaði en það hefur líklega eitthvað með það að gera að ég reyni að forðast fréttastöðvar hér og fréttaskot............humm, betra að lesa Moggann eða BBC Hins vegar er þessi frétt merki um hversu miklir snillingar búa hér allt í kringum okkur í Washington fylki (farið á síðuna hægra meginn undir liðnum VERÖLD).

Góðar stundir

posted by Big Bird a.k.a. BB 7:46 e.h.



{föstudagur, janúar 16, 2004}

 
Í fréttum er þetta helst:við stóðumst öll bílprófið og það í fyrstu tilraun. Eina athugasemdin sem ég fékk var að ég gleymdi víst ítrekað að tékka blindapunktinn. Ég botna reyndar ekkert í því, ef þetta er blindurpunktur hvernig geta þeir ætlast til þess að ég sé endalaust að skoða hann ???
Þrátt fyrir þessa yfirsjón náði ég víst prófinu.
Þar fyrir utan hefur lítið markvert gerst hérna fyrir utan náttúrulega nýjan ER í gær sem var að þessu sinni mjög erfiður. Þeir slepptu hinsvegar Scrubs sem mér þótti mjög miður en í staðin var einhver ótrúlega dapur raunveruleika þáttur, ''sörvævör'' sem gerist í atvinnulífun. Tveir hópar af framagjörnu bissness liði, skipt í lið eftir kyni. Liðin leysa svo ýmis verkefni tengd sölu og markaðsetningu og svo er einn rekinn úr liðinu sem tapar, hljómar kunnulega.
Eitt vakti þó athygli mínu, það er skiljanlegt að þátttakendur séu flestir milli tvítugs og þrítugs en ég vissi ekki að allar ungar bissness konur væru að minnsta kosti 170 cm og 45 kg, þetta á þó aðeins við um konurnar. Tja það er eins fallegt að ég reyndi ekki fyrir mér í viðskiptafræði því ef þetta eru almennar forkröf er hætt við að ég hefði ekki komist langt.


posted by Big Bird a.k.a. BB 8:36 f.h.



{þriðjudagur, janúar 13, 2004}

 
Nú er svo komið að það er ekki þverfótað fyrir nýju Radfordunum, eða the Hermannsson´s hér í Seattle. Það er alveg furðulegt hversu oft við rekumst á þau á förum vegi utan skólans. Fyrir jól þegar við vorum að spóka okkur í bænum í leit að jólagjöfum mættum við þeim ekki sjaldnar en tvisar. Í morgun keyruðum við svo til Greenwood, hverfi sem við annars förum aldrei í, til þess að taka skriflega bílprófið. Við höfðum beðið þar í innan við fimm mínútur þegar herra Hermannsson´s tölti inn.
Hvernig getur þessi borg verið svona lítil ?????
Það er hinsvegar alltaf gaman að hitta the Hermannsson´s, bara pínu skrítið hvernig það gerist.....

Fyrst ég er búin að leka því út að við tókum skriflega prófið í morgun er vert að taka fram að við stóðumst það öll.
Hinsvegar stóð ég mig mun verr en þegar ég tók það fyrst heima á Íslandi. Það er því deginum ljósara að ég er að verða vitlausari með hverjum deginum, hvort það er aldurinn eða dvöl mín hér í landi frelsisins sem veldur ætla ég að láta ósagt.
Svo gæti það líka bara verið eitthvað allt annað.




posted by Big Bird a.k.a. BB 10:55 f.h.



{mánudagur, janúar 12, 2004}

 
Það er naumast að tíminn flýgur, aftur komin mánudagur og kennarinn farinn að tala um skyndipróf og alles, þetta er náttúrulega bilun.
Annars var helgin fín, byrjaði eiginilega á hangikjöts, fiskbúðings og bauna áti svo fátt eitt sé nefnt í Scanhouse á fimmtudaginn. Maður var vel mettur fram eftir degi eftir þessa síðbúnu þrettánagleði og því alveg kjörið að bregða sér í síðbúið nýársteiti hjá nýju Radfordunum á föstudegi. Armin töfraði fram frábæran lax sem var ljúft eftir kjötátið daginn áður. Fæst okkar stóðust þó hangikjötið og harðfiskinn sem var á borðinu.

Fleiri voru afrekin eiginlega ekki þessa helgina fyrir utan að verma aðeins visakortið á útsölunum og í Puma búðinni....sú verslun er bara hættulega flott.

Ég, Oscar og Björgvin brugðum okkur á driving range til þess að liðga sveifluna örlítið, af þeirri för fara fáar sögur en það gæti verið skynsamlegt að bæði liðga og æfa sveifluna næst.

Eftir að hafa lesið megnið af sunnudeginu ákváðum við að verðlauna okkur með að fara í bíó, þessa dagana eru bara svo margar myndir í bíó sem við verðum að sjá. Í gær sáum við Síðasta Samurian með Tom Cruse, sitt sýndist hverjum enda kvikmyndasmekkur okkar harla ólíkur. Mér fannst kvikmyndataka og búningarnir hinsvegar alveg geggjaðir og sum atriðin voru hrein snilld. Ég tel það vera merki um mjög flott myndskeið að ég var hálfnuð með að plana aðra ferð til Japans í huganum þegar myndir var búin.

posted by Big Bird a.k.a. BB 12:28 e.h.


spacer