|
|
fimmtudagur, október 09, 2003
Hey dúd.......þiss is ossom dúd.
Finding Nemo er bara ekkert verri í annað skiptið. Þeir voru að sýna hana í skólanum kostarði ekki nema 2 dollara auk þess sem ég hafði fína afsökun til að fara snemma af skrifstofunni.
Hvernig var það með teiknimyndir sem ég horfði á sem krakki voru þær svona hnyttnar ? Allavega man ég ekki eftir persónum eins og skjaldbökunni í Finding Nemo, mávunum eða Eddie Murhpy sem asninn í Shrek.
Ætli það sé annarst ekki geggjað gaman að vinna við að gera þessar teiknimyndir, ætli tölvunördarnir fái einhverju að ráða ..... kannski ég fari bara að æfa mig að teikna í paint.
Svo er það kalifornia um helgina, þeir hafa það flott þessir nemar......
posted by Big Bird a.k.a. BB 11:27 f.h.
sunnudagur, október 05, 2003
Nú ber til tíðinda hér í Sesame stræti......já nema hvað, er það ekki bara ég Kúkkí sem rita hér trékk oní hvað eins og maðurinn sagði.
Ætli sé ekki best að renna í gegnum helgarpistilinn svona til þess að þið hafið einhverja hugmynd um hvað við höfum verið að brasa. Á föstudagskvöldið var blásið í lúðra og öllum 4 nýju Íslendingunum boðið að koma í Sesame stræti til að hitta gömlu Íslendingana og rekja úr þeim garnirnar um búskaparhætti hér í Seattle. Eins og venja er í flestum Íslendingateitum var öllum gert að koma með sitt eigið á grillið og einhvern vökva til að væta kverkarnar. Við vorum hins vegar svo höfðingleg að bjóða upp á óbarinn harðfisk að vestan og lakkrís að sunnan og má með sanni segja að enginn hafði fúlsað við þeim veitingum. Enda löngu orðið ljóst að harðfiskur og lakkrís er gjaldmiðill Íslendinga í útlöndum, hver myndi ekki selja ömmu sína fyrir 1 kg af lakkrís? Teitið heppnaðist með eindæmum vel og er BB að vinna í þvi að hlaða inn myndum af þessum merka viðburði.
Nú, á laugardeginum var svo haldið af stað í efnafræðideildarteiti sem var með þeim hætti að allir áttu að koma með eitthvað ætt í slíku magni að það myndi duga fyrir alla sem boðnir voru. Við veltum vöngum yfir þessu lengi vel en svo að endingu tók Napoleon af skarið og ákvað að jarðaber, rjómi og danskt bakarís brauð skildi borið fram í boði Sesame strætisíbúa. Það skal tekið fram að þetta teiti stóð engan vegin undir væntingum um stöðluð efnafræðiteiti, nei þarna var ekki verið að segja brandara sem enda á hnyttnum efnafræðiformúlum........heldur var bara farið um víðan völl í samtölum og eftir kvöldið lágu ekki minni umræðuefni í valnum en stjórnmál, trúmál og daggarmörk.
Eftir tvo daga af leik var ekkert annað í stöðunni en að hafa dagsskipunina: lærið!!!! og höfum við öll lagt okkar af mörkum.
Endilega munið svo að stalda við í nokkrar mínútur og njóta lífsins í dag.......það er sannarlega þess virði.
Góðar stundir
posted by Big Bird a.k.a. BB 10:58 e.h.
|
 |