|
|
fimmtudagur, apríl 17, 2003
Að verður seint sagt um mig að ég hafi ekki plön ! Í gær var ég með ýmislegt á listanum, um það bil allt sem ég hef trassað undanfarið en hvað varð mér svo úr verki ???? Ekki neitt. Það var reyndar komin rigning, ok dropar þegar ég kom heim og það notaði ég sem afsökun til þess að horfa bara á South Park. South Park bregast sjaldan sérstaklega ekki þegar ég horfi svona sjaldan á það.
Kúkkí fór eins og stundum á miðvikudögum á heilsugæslu bílinn til þess að hjálpa unga fólkinu sem býr á götunni svo hún missti af South Park en ég held að hennar tíma hafi örugglega verið betur varið.
Í sjónvarpinu hérna eru auglýsingar inní miðjum myndum svo þær taka allar um 3 tíma í sýningu auk þess sem þær eru flestar endursýndar. Maður veltir fyrir sér þvílík tímasóun þetta er, við erum með um 70 stöðvar og samt finnst mér aldrei neitt vera í sjónvarpinu nema ritskoðaðar hasarfréttir og auglýsingar.
Kannski eru stöðvarnar bara alltof margar svo maður endar með að flakka á milli stöðva og sér ekkert. Það er náttúrulega þannig með flest ef það virkar ágætlega er því ofgert svolítið, ég hef til dæmis ekki tölu á öllum reality þáttunum sem eru í gangi. Þá myndi ég frekar vilja fréttir á 30 mín heldur en tveggja tíma þátt með endalausum auglýsinga hléum og ''when we return....'' og svo bíður maður allan þáttinn eftir 10 sek fréttaskoti um ekki neitt : )
Mér skilst að stíllinn heima sé sífellt að nálgast fréttastílinn hér. Ætli við komum líka til með að taka upp reality þættina ? Þættir einsog ''piparsveinninn'' myndi sennilega verða athylgisverður, ætli það séu til margar íslenskar steplur sem væru til í ''deita'' gaur sem er með nokkrar aðrar í takinu á sama tíma ???
Það virðist allavega ekki pirra kanann mikið.
posted by Big Bird a.k.a. BB 12:39 e.h.
þriðjudagur, apríl 15, 2003
Mánudagurinn komin og farinn sem var svo sem viðbúið hinsvegar er Jón líka farinn. Jón er frændi CCK´s (coculate chip Kúkký) og kom alla leið frá Íslandi til þess að kynnast gestrisni Sesamestrætisbúa, eitthvað þóttist hann nú líka eiga erindi á vesturströndina og þetta náttúrulega í leiðinni. Flugið hingað er ekki nema bara eins og að skreppa til Japans eða svo.
Það er reyndar alltaf pínu skrítið að hugsa til þess því maður er jú í bandaríkjunum og það ætti ekki að vera svo langt í burti, en þetta land er bara töluvert breiðara heldur en flestir gera sér grein fyrir. Það tekur um 6 klukku tíma að flúga þvert yfir landið austur, vestur en rétt rúma 2 tíma norður suður. Fáranlegt !!!!!!
Það var kjördagur í Seattle á sunnudaginn og settu strákarnir í Scan house upp kjörklefa í eldhúsinu. Bakaradrengurinn dróg fram svuntuna og bakaði pönnukökur með (presta) kaffinu, já þeir eru höfðingar heim að sækja piltarnir í Scan house.
Kannski þeir ættu að taka þá til fyrirmyndar heima og bjóða uppá kaffi og með því á kjörstað, það myndi nú allavega ekki draga úr kjörsókn er það ?
posted by Big Bird a.k.a. BB 10:20 f.h.
|
 |