|
miðvikudagur, febrúar 08, 2006
Nú er skömmum og ekkert svo farsælum ferli mínum sem sundkörfuboltaleikamanni lokið, í bili allavega. Í gær spiluðum við í playoff. Fyrri hálfleikurinn gekk vel og má með sanni segja að það hafi verið leikur hinna sterku varna, staðan í hálfleik var 6-10 fyrir andstæðingana. Síðari hálfleikur var vægast sagt hræðilegur, svo slæmur að ekkert okkar hafði fyrir því að kíkja á stöðuna í leiks lok. Þótt svo skorið væri slæmt var rosalega gaman, keppnin, vatnið og gersamleg uppgefnir útlimir sameinuðust í ótrúlegri sælutilfinningu, adrenalín. Annars hafa dagarnir verið hverjum öðrum líkir undanfarið, bara læra, borða, sofa. Au pairinn tekur hlutverk sitt mjög hátíðlega og hefur framreitt veislumáltíðir á hverju kvöld og kann ég honum miklar þakkir fyrir það. Við fórum reyndar á mánudaginn að sjá walk the line sem byggð er á ferli Johnny Cash. Frábær mynd sem ég mæli tvímælalaust með. Whistler ferðin er frágengin loksins og verður haldið af stað föstudaginn 17 febrúar, það styttist svo sannarlega í það :)
eins og þeir kveðja á rúv, lifið heil
posted by Big Bird a.k.a. BB 9:18 f.h.
|
 |