|
föstudagur, júní 13, 2003
Loksins fannst örstutt stund milli stríða. BB og Kúkkí eru á ferð og flugi þessa dagana og hefur Oscar staðið sig með prýði að halda uppi heiðri okkar hér ( kannski ekki miklu að halda en hvað um það ).
Kúkkí flaug í sólina og BB gerir stutt stop á Íslandi áður en haldið verður í víking til Írlands. Það er furðulegt hvað maður er snöggur að komst inní alíslenskan yfirsnúning. Já helst þyfti maður að vera á fjórum stöðum í einu, hið minnsta. Þvílík geggjun, verst að maður býr þetta sjálfsagt allt til sjálfur. Hringsnúast kringum allt og ekki neitt :)
En fyrst BB er komin í spítgírinn vona ég að þið hin viðhaldið orkujafnvægi heimsins og slakið vel á um helgina.
posted by Big Bird a.k.a. BB 11:04 f.h.
|
 |