{Sesame str. 58 } spacer
spacer
spacer

Höfum það einfalt!!!!



Nyjar Myndir

SpesOl 2003

Heimasíður

Mista systir & Lilja
Audur & Emelia
Eva & Torfi
Hrönn
Soffía
Nori
Söngvarinn
Mikkirefur
Ólöf & Pétur
Hrabba
María
Amerígunni
Gunnar Magnús
Magnea & Jón Bjarni
SíAtli

Seattlebúar

Ásgeir & Óli
Tumi
Gunni & Solla
Erna & Hjalti
Grétar

Börn

Dagur Þór
Stefanía Diljá
Hraunbúar

Mogginn

SAA

Netþýðandinn Leoncie




powered by blogger






Weblog Commenting by HaloScan.com

{sunnudagur, október 27, 2002}

 
Þá er helgin að verða búin og það bar til tíðinda hér við Kyrrahafsstöndina, já ekki nóg með það að helgin byrjar á fimmtudegi hjá mér heldur voru Kanarnir svo elskulegir að bæta einni klukkustund við sólarhringinn. Jamm, um miðjan dag uppgötvaðist það að klukkan var 14 en ekki 15 og upphófst mikill fögnuður hér í Strætinu. Við gátum því slæpst í búðinni í tvo tíma í stað eins. Við viljum samt benda því almennilega fólki sem hingað hringir að gera ráð fyrir því í tímasetningum sínum. Ég lærði eitt merkilegt í gær, vissu þið að það er hægt að notast við lauk er verið er að útskýra hversu flókið sálarlífið er, svo vitnað sé í Shrek. Sálin er víst fyrir innan mörg lög og það getur verið erfitt að komast þangað. Ætli ég geti notað þetta í ritgerð í skólanum? ja eða sem sjúkdómsgreiningu? onionismi, það þýðir að viðkomandi hafi bara aldrei hleypt neinum inn fyrir gátt sálarinnar og allir sem eru í kringum hann gráta bara. Það er ekki heiglum hent að skera laukinn!! en nóg um það. Hvað er það með sunnudaga? Voru það ekki hvíldardagar? en hér í strætinu er aldrei lært eins mikið, kannski af því næsti dagur er mánudagur og oft þarf að skila af sér verkefnum og neminn er ALVEG á síðast snúning. Hver kannast þó ekki við að vinna best undir pressu? já vissi ég ekki, þú líka Björn bóndi! Við erum þó að hugsa um að slá öllu upp í kæruleysi, fara út og slæpast en hefjast handa um miðnætti. Það á enginn að koma útsofinn í skólann á mánudegi, bíddu nema meðlimir Skákklúbbsins ;o) Við eru þó í smá vandræðum hér í Sesame stræti, væru þið til í að senda okkur tillögur að hönnun Graskerjabrosa, tillögum má skila í hvaða forriti sem er, við ætlum nefnilega í samkeppni við nágrannann og það verður skorið til sigurs!!!!!

posted by Big Bird a.k.a. BB 8:24 e.h.



{laugardagur, október 26, 2002}

 
Jæja þá er komin laugardagur og við bara skriðnar fram úr hinar sprækustu hehehehehe. Já sælkerakvöldið var bara mjög vel heppnað fullt af fólki og fínn matur. Svo var náttúrulega 'scan hás party', ótrúlegir kanarnir þeir kunna ekki einu sinni stál og hnífur............ við eigum því ærið verk fyrir höndum, kenna þeim stál og hníf og mennta þá í Megas og Glíg-gló, eins gott að fara að koma sér að verki.

posted by Big Bird a.k.a. BB 2:20 e.h.

 
við stelpurnar erum algörlega að rúla í kvöld. Það er allt eins þegar við reynum að skipuleggja kvöldið,úff við bara klúðrum málunum. Það er sem sagt partý hér í Sesamestreeet, og margir boðnir en samt ekki boðnir, við byrjuðum kvöldið í ró og spekt. Bara allir rólegir og svo fannst okkur partýið frekar leiðinlegt og einhvern vegin vorum við bara komin heim í Sesame streeet. úff úff við berum enga ábyrgða á því sem gerist hér í kvöld. En fyrir þá sem vilja vita þá er þetta allt framkvæmt undir ljúfum tónum Bjarkar og Megasar. hihihihihihi

posted by Big Bird a.k.a. BB 3:28 f.h.



{fimmtudagur, október 24, 2002}

 
Jammms, í sesamestreet er allt við það sama. Stóra köngulóin sem Lóbós Marengus flutti yfir götuna var búin að senda frænda sinn að fremri dyrinum í morgun. Þó svo frændinn sé ekki eins vígalegur er hann afskaplega efnilegur, það er þó að minnsta kosti engin hætta á að hrekkjavökuskreytinginn okkar verði ekki nógu raunveruleg. Íkornarnir halda áfram að færa okkur hálf étin epli en pokarottan heldur sig í hæfilegri fjarlægð það er aldrei að vita nema hún geri sig heimakomna rétt einsog áttfætlingarnir ?
En nóg um dýralífið, í dag er fimmtudagur sjónvarpsdagurinn mikli. Í sesamestreet er jafnan slökkt á þeim svarta kassa en mikil eftirvænting ríkir þó á fimmtudögum og sitja íbúar sem límdir í stofunni. En eitt gleymdum við þó að gera ráð fyrir það eru hrekkjavöku þættir í mörgum seríum í næstu viku og því endursýningar í gangi. Við vorum nú ekkert að láta það á okkur fá þó svo vinir væru heldur kunnulegir en þegar ER breyttist í Law and order var okkur öllum lokið. Já svona geta þeir farið með okkur auglýst nýjan þátt og hætt svo bara við, hversu mörgu sinnum en komum við til með að falla fyrir 'all new episons NEXT thursday'. Svona er maður nú einfaldur að halda með NEXT thursday meini þeir næsta fimmtudag en ekki fimmtudaginn í næstu viku......furðuleg málvenja.
En við bíðum því bara spenntar eftir næsta fimmtudegi........

posted by Big Bird a.k.a. BB 11:43 e.h.



{miðvikudagur, október 23, 2002}

 
Það er varla að ég þori að blögga í dag, tölvan í mín í skólanum er í uppreisn og tölvan mín hérna heim í molum..... Cookie Monster hefur hinsvegar aðlagast miklu hraðar en ég og er í sjálfboðavinnu í bænum ala ameríka. Það eru því ekki miklar líkur á að hún, hann það blöggi. (Það er ekki spyrning, Cookie Monster er hún en Monster er það, það Monsterið, en sesamestreet Cookie Monster er víst hann ??)
Annars er helst að frétta að áttfætlingarnir voru búnir að spinna sig nánast alveg utan um runnan við framdyrarnar og það líka þvert fyrir göngustíginn. Það er ekki nokkur spurning um það að þessi kvikindi eru með miklimennsku brjálaði, það er engan vegin skynsamlegt að eyða kröftum sínum í að spinna vef milli tveggja trjáa með næstum 2 m milli bili. Allaveg ekki ef litið er til hlutfallslegar stærðar framkvæmdaraðila, það er samt sjalfsagt einhver snillingur þeirra á meðal sem ákvað að staðsetja mannvirikið (???) þvert fyrir göngustíginn .....allavega gerðu þær það.

posted by Big Bird a.k.a. BB 8:51 e.h.

 
Vissu tid ad herna vid UW eru einhverjir sem dunda ser vid tad ad safna laxi i litla tjorn a morgnanna. Hann faer svo svamla i rumlega 50 cm djupri tjorninni i heilan dag og mer skylst ad svo se teim slatrad i morgun sarid........ eg meina hvad geta tessir menn verid ad gagnryna grindhvalaveidar ?? Eg verd ad vidurkenna ad mer finnst tetta svo furduleg visindi ad tad er varla ad eg trui tessu, en allavega er laxinn i tjorninni nuna tad eg get sagt ykkur.

posted by Big Bird a.k.a. BB 3:19 e.h.



{þriðjudagur, október 22, 2002}

 
BB er algjörlega andlaus eftir daginn, hann bara situr í stofunni og er að þykjast lesa en ég sé í gegnum þetta, hehehehehehehehehehehe, það eru auglýsingarnar sem fanga hugann. En æi dag bar til tíðinda í baráttu okkar, hér í Strætinu, við áttfættu skrímslin sem hafa verið að reyna að yfir taka hýbýlin. Þegar

posted by Big Bird a.k.a. BB 10:28 e.h.



{mánudagur, október 21, 2002}

 
Ég ætla nú bara rétt að skrifa nokkur orð þar sem að BB var svo rosalega duglegur að skrifa hér á undan. En ég sé mig knúna til þess að þakka kærlega fyrir pakkann sem bart í Sesame stræti í dag, minnstu mátti þó muna að könuglóin bæri mig ofurliði er ég var að ná í pakkann út á töppur. Þeir sem mig þekkja vita hvað ég mér semur illa við þessi dýr og sem betur fer var hún svo hátt uppi á dyrakarminum, ja alveg efst (hey ég er nú bara einnogsextíu) svo ég bara sá hana ekki. Frétti svo af henni rétt á eftir og prísaði mig sæla að vera komin inn með allan lakkrísinn, hehehehehe, nú er kátt í höllinni, höllinni höllinni!!! Og Sonja, takk fyrir myndina, hún er komin á ísskápinn.

posted by Big Bird a.k.a. BB 11:29 e.h.

 
Jæja hvenær ætli ég læri að taka back up ???? kannski á morgun þó ekki líklegt, það má samt alltaf vona.
Í morgun þegar ég gægðist út um dyrnar heilsaði mér kumpánlega sú stærðsta kónguló sem ég hef á ævinni séð. Þessi elska var á stærð við tíukróna pening þó var hún afskaplega leggja stutt en var þó öllu litskrúðugri en silfraði tí-kallinn. Ég hef löngum verið mikill dýravinur og ákvað því ekkert að vera raska ró þessa nýja íbúar strætisins og notaðu bara bakdyrnar. Ég er nú samt hræddum að fljótlega verði tví- og áttfættir íbúar sesamestrætis að setjast að samningarborðinu og jafnvel skipta landareigninni á milli sín. Það er hætt við að þær viðræður verði blóðugar enda hafa áttfætlingarnir nú þegar lokað einum útgangi og hafa sjálfsagt á áætlun sinni á loka fleirum.
Til samningaviðræðna fyrir hönd tvífætlinga er öllum þeim boðið sem hafa meira gaman af þessum skepnum en mér, þó er þeim sem eru þeim sérstaklega vinveittir bent á að halda sig fjarri.
Fyrir utan að plana hvernig ætti að komast inn að kvöldi var tímanum eytt á flag football vellinum. Það hefði nú verið ágætt að vinna þar svona til þess að byggja upp sjálfstraustið fyrir heimkomuna en að sjálfsögdu steinlágum við, við hreinlega verðum að læra að grípa boltann !!!!!
Annars er þetta nú meiri íþróttin, ég var náttúrulega búin að sjá fyrir mig þvílíka spretti og læti, andlega var ég því undirbúin undir vikurlegt 'píp test' . Já við fáum alveg að spretta...............nokkur skref svo koma eins og 5 min pása til þess að setja upp leikkerfi og stilla upp liðinu. ég meina til hvers að setja upp leikkerfi hefur þetta lið ekki séð okkur spila. Þó svo efnilegri leikmaður hafi ekki sést lengi í flag football held ég að ég leggi þetta ekki fyrir mig......

posted by Big Bird a.k.a. BB 11:16 e.h.


spacer